Hjá Zulima færðuaðgangaðhátt í 20 árareynslu á sviðifjölmiðlunar. Zulima hefuraðgangaðafbragðskvikmyndagerðarfólkisemhefuryfirgripsmiklareynslu.
Það er um að gera að hafa samband og athuga hvort Zulima sé það sem þú leitar að.
Lára Ómarsdóttir
Lára Ómarsdóttir, fjölmiðlakona, stofnaði Zulima 2023.
Lára er reyndur blaðamaður með víðtæka reynslu í ljósvakamiðlum. Lára hefur yfirgripsmikla þekkingu á sviði fjölmiðlunar, blaðamennsku og samskipta. Hún hefur sérhæft sig í framleiðslu ljósvakaefnis, ritstjórn, umsjón vefja, fréttaskrifum, myndbandagerð, klippingu, handritaskrifum, samfélagsmiðlum, almannatengslum og fréttum.
Lára hefur framleitt og leikstýrt fjölmörgum sjónvarpsþáttum á borð við Ferðastiklur og Náttúran mín sem tilnefndir voru til Edduverðlauna og heimildarmyndum eins og Katla kemur og Bárðarbungu sem sýndar voru á RÚV. Lára sat um tíma í ritstjórn Kveiks og í ritstjórn Kompás en báðir þættir eru margverðlaunaðir sjónvarpsþættir á Íslandi á sviði rannsóknarblaðamennsku.
Zulima tekur að sér fjölbreytt verkefni sem tengjast fjölmiðlum og samskiptum við þá þar á meðal:
Leikstjórn
Fréttaskrif
Textaskrif
Handritaskrif
Hugmyndavinna
Almannatengsl
Myndbandsgerð
Útvarpsefni
Fundarstjórn
Fyrirlestur
Samfélagsmiðlar
Vefumsjón
Hafðu samband
Það er hægt að senda tölvupóst, hringja eða senda fyrirspurn í gegnum þessa síðu. Ekki hika við að hafa samband ef þú heldur að við eigum samleið. Öllum fyrirspurnum er svarað.
Zulima ehf. Flókagötu 3 105 Reykjavík kt. 550323-1920